Áfram ofankoma við Eyjafjörð

Áfram verður snjókoma á Norðurlandi.
Áfram verður snjókoma á Norðurlandi. mbl.is/Skapti

Það verða ekki miklar breytingar á veðrinu til morguns og áfram er spáð hríðarveðri með ofankomu á Norður- og Norðausturlandi, ekki síst við Eyjafjörð. Í fyrramálið snýst vindur til NA-áttar, áfram verður allhvasst með skafrenningi og kófi á flestum fjallvegum frá Bröttubrekku í suðri norður- og austur um á Austfirði, samkvæmt upplýsingum veðurfræðings Vegagerðarinnar.

Veðurvefur mbl.is.

Vegir eru greiðfærir að heita má um allt sunnanvert landið.  Hvassviðri er á Kjalarnesi og Mosfellsheiði og hálkublettir og skafrenningur á Lyngdalsheiði.

Á Vesturlandi eru flestir vegir greiðfærir en eitthvað er um hálkubletti. Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði og hálka og skafrenningur í Svínadal. Snjóþekja og stórhríð er á Bröttubrekku og snjóþekja og skafrenningur á Fróðárheiði.

Hálka eða snjóþekja er á flestum leiðum á Vestfjörðum.  Ófært og stórhríð er á Klettshálsi. Á Steingrímsfjarðarheiði er  þungfært og stórhríð og verður fylgdarakstur yfir heiði eins lengi og hægt er. Snjóþekja og stórhríð er á Þröskuldum og ófært norður í Árneshrepp.

Það er víða hálka, snjóþekja, skafrenningur og éljagangur á Norðurlandi. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Hólasandi.

Á Austurlandi er hálka, snjóþekja eða þæfingsfærð og snjókoma á flestum leiðum. Lokað er á Fjarðarheiði og á Fagradal og ófært er á Vatnsskarði eystra. Snjóþekja og skafrenningur er á Oddsskarði og þæfingsfærð á Vopnafjarðarheiði en hálka á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og mjög blint.. Öxi og Breiðdalsheiði eru ófærar.

Greiðfært er með suðausturströndinni en nokkuð hvasst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert