Gefa út nýtt frímerki vegna Smáþjóðaleika

Hér má sjá frímerkin.
Hér má sjá frímerkin. Ljósmynd/Pósturinn

Þann 30. apríl nk. verður nýtt frímerki gefið út hjá Íslandspósti með myndum af þeim íþróttagreinum sem keppt verður í á Smáþjóðaleikunum 2015.

Frímerkið er gefið út af því tilefni að Smáþjóðaleikarnir eru haldnir á Íslandi í ár. Hönnuður frímerkisins er Elsa Nielsen grafískur hönnuður og hluti af hönnunarteymi Smáþjóðaleikanna 2015. 

Um 30 ný frímerki eru gefin út á hverju ári, hvert og eitt þeirra sérstaklega hannað. Frímerkjasalan er með sinn eigin vef þar sem hægt er að kaupa frímerki, frimerki.is. 

Heimasíða Smáþjóðaleikanna 2015: www.iceland2015.is.

www.facebook.com/gsse2015.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert