5.111 sýni tekin árin 2013 og 2014

Lögregla að störfum.
Lögregla að störfum. mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Árið 2013 voru tekin 1,074 blóðsýni vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og 1.410 vegna gruns um ölvun við akstur. Árið 2014 voru tekin 1.233 blóðsýni vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna en 1.394 vegna gruns um ölvun við akstur.

Þetta kemur fram í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn Birgittu Jónsdóttur um blóðprufur vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í svarinu er stuðst við umsögn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, sem unnin var í samráði við ríkislögreglustjóra.

Í fyrirspurn þingmannsins er m.a. spurt að því í hve mörgum tilvikum grunur hafi verið sannaður með blóðprufu. Í svari ráðherra kemur fram að í brotum vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna hafi neysla verið staðfest í 84% mála árið 2013 og í 88% mála árið 2014.

Í brotum vegna gruns um ölvun við akstur var neysla staðfest með sýni í 99% tilvika, þar af yfir sektarmörkum (0,5%) í um 90% tilvika.

Áætlaður kostnaður við blóðsýnatöku vegna ölvunar við akstur var 24,4 milljónir árin 2013 og 2014, og 181,8 milljónir vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Áætlaður kostnaður vegna töku blóðsýna þessi ár er 65,2 milljónir.

Þetta gera samtals 271,4 milljónir.

Í svari ráðherra segir um fyrirvara:

„Í umsögn lögreglustjóra, dags. 16. apríl 2015, sem unnin var í samráði við ríkislögreglustjóra, er gerður sá fyrirvari að sýni geta verið tekin úr fleiri en einum einstaklingi í hverju máli ef óljóst er hver var ökumaður og stundum eru tekin fleiri en eitt sýni úr sama einstaklingi. Þá er sá fyrirvari gerður að misjafn kostnaður getur verið við hvert sýni eftir því að hvaða efnum er verið að leita. Þá segir í umsögn embættisins að ekki liggi fyrir nákvæmar upplýsingar um kostnað í hverju tilviki og því hafi sú leið verið farin að áætla tíðni kostnaðarliða og margfalda svo með fjölda sýna. Það megi því gera ráð fyrir 5–10% skekkju varðandi kostnað með notkun þeirrar aðferðar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert