Úrslit Víðavangshlaups ÍR munu standa

Arnar Pétursson, ÍR var fyrstur í mark, aðeins sekúndu á …
Arnar Pétursson, ÍR var fyrstur í mark, aðeins sekúndu á undan næsta manni. Mynd/Kristinn Ingvarsson

Arnar Pétursson, hlaupari úr ÍR og sigurvegari Víðavangshlaups ÍR í ár, rauf engar merkingar þegar hann virtist stytta sér leið að markinu. Hlaupaleið var ekki greinilega afmörkuð eða vörðuð af brautarverði þegar atvikið átti sér stað og er kærufrestur runninn út skv. reglum IAAF.

Þetta kemur fram áliti framkvæmdastjóra Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ)

Þar segir einnig að Arnar hefði líklega haldið eða bætt forskot sitt á keppinaut sinn vegna staðsetningarinnar þó hann hefði ekki skotið sér fyrir innan staurinn.

Í frétt á vef ÍR segir að móthaldarar hlaupsins vilji koma á framfæri að framkvæmd hlaupsins og merking brautar hafi verið í samræmi við það sem tíðkast hérlendis með hlaup sem þetta. Þar segir einnig að miður sé að atvik sem þetta þurfi til að bæta verklag við götuhlaup.

„Ábyrgðin liggur hjá mótshöldurum og í umgjörð götuhlaupa en ekki hjá hjá íþróttamanninum og ljóst að kappkostað verður að bæta framkvæmdina í götuhlaupum ÍR í framtíðinni,“ segir í tilkynningunni. Óskað var eftir áliti FRÍ á úrslitum hlaupsins og dómgæslu.

mbl.is fjallaði  um málið í morgun og birti myndskeið af síðustu sekúndum hlaupsins. 

Frétt mbl.is: Stytti Arnar sér leið?

Hér má sjá álit framkvæmdastjóra FRÍ í heild sinni. 

„Hér er átt við atvik rétt fyrir lok hlaupsins, þegar hlaupari fer yfir umferðareyju, bak við ljósastaur og fer styttri hlaupaleið en aksursleið segir til um og flestir aðrir hlauparar fóru um. Þetta gat verið mikilvægt atriði þar sem annar hlaupari sem var í harðri keppni við hann um sigur í hlaupinu. Síðarnefndi hlauparinn fer aðeins lengri leið út fyrir ljósastaurinn, því náði sá sem stytti sér leið mögulega betra forskoti en ella.

Þó er ekki hægt að kveða úr um hvort þessi stytting hafi skipt sköpum um endanlega röð þeirra í mark meðal annars þar sem þeir voru, áður en að þessu atviki kom, því sem næst samsíða. Þá virtist sá hlaupari, sem inn fyrir staurinn fór, vera axlarbreidd á undan og hann var innan á keppninaut sínum, þ.e. hefði farið nær staurnum í beygjunni. Hann hefði því líklega haldið eða bætt við forskot sitt á keppninaut sinn vegna staðsetningar sinnar hvort sem er.

Frjálsíþróttasambandinu er ljóst að reglum þess og IAAF um götuhlaup er ábótavant er varðar eftirlit og með framkvæmd götuhlaupa. Einnig er sambandinu það kunnugt að fræðsla dómara og mótshaldara götuhlaupa hér á landi er líka ábótvant. Ekki eru til reglur t.d. um eftirlit með framkvæmd hlaupa hér á landi.

Úrbætur í þessum málum voru m.a. til umræðu á fundi stjórnar FRÍ síðasta Vetrardag. Þá hefur Frjálsíþróttasamband Evrópu (EAA) kynnt reglur um gæðaeftirlit og framkvæmd götuhlaupa, en unnið er að innleiðingu þeirra hér á landi. Þessar úrbætur eru sérlega nauðsynlegar vegna þeirra krafna sem gerðar eru til framkvæmd götuhlaupa, að hálfu hlaupara sjálfra og að hér var um Meistaramót að ræða.

Þá virðist sem hlaupstjórn VÍR hafi ekki tekið af með afdráttarlausum hætti hvar hlaupaleið var með merkingum eða upplýst brautarvörð hvernig skyldi staðið að gæslu á þeim stað sem um ræðir.

Í lýsingu mælingamanna FRÍ hlaupaleiðinni, sem njóta viðurkenningar IAAF og AIMS, er ekki tilgreint hvar nákvæmlega beygja skuli af Tryggvagötu á Sæbraut til vinstri, öðru vísi en þannig að henni er lýst þannig að hlaupið skul „… austur (Tryggvagötu) að Lækjargötu í áttina að Hörpu …“

Beygjan var ekki auðkennd eða varin sérstaklega með brautarverði þegar atvikið átti sér stað, grindverki eða borða.

Reglur IAAF taka ekki á merkingum hlaupabrautar en að þær skuli vera greinilegar, en án nánari skilgreiningar. Dómara við götuhlaup ber tafarlaust að vísa keppanda úr leik hann gerist brotlegur við reglur. Slíkt átti sér ekki stað í þessu hlaupi.

Reglur IAAF sem eru til fyllingar reglum FRÍ sé þeim ábótvant, kveða á um að kæra skuli úrslit eða framkomu íþróttamanns, innan 30 mínútna (146.3. gr.) eftir er úrslit eru birt. Engin slík kæra eða aths. hefur formlega borst og því verða úrslitin trauðlega kærð skv. því ákvæði.

Lagaleg ábyrgð á þessu atviki getur ekki verið í höndum hlauparans. Hlaupaleið var ekki greinilega afmörkuð eða vörðuð af brautarverði þegar atvikið átti sér stað. Hlauparinn rauf því engar merkingar þegar hann virðist stytta sér leið að markinu. Óvissa um nákvæma staðsetningu hlaupaleiðar og ábyrgð annarra er of mikil til þess. Þá er kærufrestur runninn út skv. reglum IAAF."

 Uppfært: 30.apríl 2015 kl. 13:58

Upprunalega stóð í fréttinni að álitið sem umræðir hafi verið álit FRÍ. Á heimasíðu ÍR, þar sem álitið birtist, stendur hinsvegar nú að álitið sé framkvæmdastjóra FRÍ. Hefur fréttinni verið breytt í samræmi við það.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert