Eitthvað mikið að í rekstri borgarinnar

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíke eru ekki ánægðir með ársreikninginn sem …
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíke eru ekki ánægðir með ársreikninginn sem lagður var fram í dag. Sigurður Bogi Sævarsson

„Þetta eru sláandi tölur sem segja okkur að það er eitthvað mikið að í rekstri Reykjavíkurborgar. Tapið á aðalsjóði Reykjavíkurborgar er jafnhá tala og heildartekjur Mosfellsbæjar sem er í hópi stærstu sveitarfélaga landsins,“ sagði Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í ræðu sinni í borgarstjórn í dag eftir að ársreikningur borgarinnar fyrir árið 2014 var kynntur í dag. 

Þetta er fyrsti ársreikningur sem meirihluti Samfylkingarinnar, Vinstri grænna, Bjartrar framtíðar og Pírata leggja fram á kjörtímabilinu. 

Frétt mbl.is: Vantaði 3,3 milljarða hjá Reykjavík.

Bókun borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem lögð var fram á fundinum

Ársreikningur ársins 2014 sýnir mikið tap á A-hluta Reykjavíkurborgar eða sem nemur 2,8 milljörðum króna þrátt fyrir að rekstrartekjur A-hluta vaxi um 2,3 milljarða króna milli 2013 og 2014. Tap aðalsjóðs er 7,1 milljarðar króna og er bætt upp með jákvæðri afkomu Eignasjóðs og Bílastæðasjóðs þannig að niðurstaðan verður 2,8 milljarðar króna í tap.

Í skýrslu Fjármálaskrifstofu borgarinnar segir um þennan taprekstur að mikilvægt sé að bregðast við þessum aðstæðum. Þar segir einnig um veltufé frá rekstri sem er einungis 5% að lágmarkið vegna skuldastöðu A-hluta borgarinnar sé 9%. Í ljósi þess hversu mikils hlutleysis er almennt gætt í orðavali Fjármálaskrifstofu verður að líta svo á að þarna sé um þung viðvörunarorð til meirihlutans að ræða.

Þegar rekstur A-hluta er skoðaður frá árinu 2002 má sjá að í tíð vinstri meirihluta 2002-2006 er taprekstur öll árin. Árin 2007-2010 er Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta og þá er jákvæð afkoma öll árin. Vinstri meirihluti tekur svo við vorið 2010 og eftir það er aftur taprekstur á A-hluta að frátöldu árinu 2013 sem verður að segjast að sé undantekningin sem sannar þá reglu að í tíð vinstri meirihluta við stjórn Reykjavíkurborgar er taprekstur á A-hluta. Þannig er það þrátt fyrir að útsvari sé haldið í hæstu löglegu hæðum.               

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert