Finnur hlaut stöðu forstöðumanns

Náttúrufræðistofa Kópavogs
Náttúrufræðistofa Kópavogs Morgunblaðið/Kristinn

Finnur Ingimarsson líffræðingur hefur verið ráðinn forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs.  Alls 14 sóttu um stöðuna sem auglýst var laus til umsóknar í mars síðastliðnum. Einn dró umsókn sína til baka. Finnur var talinn hæfastur umsækjenda til að gegna starfinu.

Finnur er með B.Sc. próf í líffræði frá Háskóla Íslands og B.Sc.hon. í líffræði frá sama skóla. Finnur hefur starfað við Náttúrufræðistofu Kópavogs frá árinu 1993 og hefur á þeim tíma tekið þátt í skipulagningu og framkvæmd rannsóknarverkefna sem Náttúrufræðistofan hefur tekið að sér.

Hann hefur einnig haft yfirumsjón með móttöku og leiðsögn hópa um náttúrugripasafn Náttúrufræðistofunnar en safnið er eina náttúrugripasafnið á höfuðborgarsvæðinu sem opið er almenningi. Hundruð skólabarna sækja safnið heim á ári hverju.

Síðasta eina og hálfa árið hefur Finnur verið settur forstöðumaður  Náttúrufræðistofunnar en starfinu gegndi áður Hilmar J. Malmquist sem nú er forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands.

Náttúrufræðistofa Kópavogs er í sama húsnæði og Bókasafn Kópavogs og tilheyrir Listhúsi Kópavogsbæjar en þar undir falla einnig Gerðarsafn, Salurinn, Héraðsskjalasafn Kópavogs og Tónlistarsafn Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert