Loka póstafgreiðslu á Tálknafirði

Póstbíll mun þjónusta íbúa Tálknafjarðar.
Póstbíll mun þjónusta íbúa Tálknafjarðar. Ljósmynd/postur.is

Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur samþykkt beiðni Íslandspósts um heimild til að loka póstafgreiðslu á Tálknafirði. Í staðinn ætlar Íslandspóstur að nota póstbíl til að sinna þjónustu við íbúa svæðisins.

Það er mat stofnunarinnar að sú þjónusta sem Íslandspóstur ætlar að veita í stað póstafgreiðslunnar fullnægi gæðakröfum laga um póstþjónustu sem og þeim skyldum sem hvíla á fyrirtækinu sem alþjónustuveitanda.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu PFS. 

„Ein meginskylda Íslandspósts er að afhenda bréf og böggla til skráðs viðtakanda sem og að móttaka bréf og böggla til póstmeðferðar frá viðskiptavinum sínum. Engin breyting er boðuð af hálfu Íslandspósts varðandi útburð póstsendinga á svæðinu.

Bréfberi/bílstjóri mun nú taka á móti póstsendingum frá íbúum og fyrirtækjum á Tálknafirði með sama hætti og hann hefur gert hjá íbúum utan þéttbýlis um áraraðir og nú í seinni tíð á minni þéttbýliskjörnum víðs vegar um landið, s.s. Eyrarbakka, Stokkseyri og Stöðvarfirði svo einhverjir staðir séu nefndir.

Ekki verður annað séð en að eina hugsanlega óhagræðið sem í þessu felst sé að ekki er lengur afgreiðslustaður með fyrirfram skilgreindum opnunartíma. Á móti kemur að íbúar geta hringt í bréfbera/bílstjóra og pantað þjónustu innan ákveðins tímaramma eins og segir í skýringum með breytingunum.

Póstkassi verður á Tálknafirði og í hann verður áfram hægt að koma almennum bréfum til skila sem bera með sér að burðargjöld hafi verið greidd. En aðgangur að póstkassa er hluti af skilgreiningu á hugtakinu afgreiðslustaður samkvæmt lögum um póstþjónustu. Að mati PFS eru þær breytingar sem boðaðar eru á þjónustuháttum til þess fallnar að minnka þörfina fyrir að reka hefðbundinn afgreiðslustað á Tálknafirði,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert