Ófært á Fróðárheiði og Kletthálsi

Sumarið er víst ekki alveg komið.
Sumarið er víst ekki alveg komið.

Vegir eru greiðfærir að heita má um allt sunnanvert landið.  Hvassviðri er á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli.

Á Vesturlandi eru flestir vegir greiðfærir en eitthvað er um hálkubletti. Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði og í Svínadal. Snjóþekja og skafrenningur er á Bröttubrekku en Fróðárheiði er ófær og þar er stórhríð.

Hálka eða snjóþekja er á flestum leiðum á Vestfjörðum.   Þæfingsfærð er í Ísafjarðardjúpi. Ófært er á Klettshálsi og Steingrímsfjarðarheiði en mokstur er hafinn.  Ófært er norður í Árneshrepp.

Það er víða hálka, snjóþekja, skafrenningur og éljagangur á Norðurlandi.

Snjóþekja er á Öxnadalsheiði. Ófært er á Hólasandi og í Hófaskarði og þæfingsfærð um Tjörnes. Búið er að opna Mývatns- og Möðrudalsöræfi en þæfingur er á Hárekstaðaleið og á Vopnafjarðarheiði.

Á Austurlandi er hálka, snjóþekja og víða skafrenningur.  Þæfingsfærð er á Fjarðarheiði og einbreitt á köflum en mokstur stendur yfir. Þæfingsfærð er á Vatnsskarði eystra. Snjóþekja og skafrenningur er á Fagradal og hálka og skafrenningur á Oddsskarði. Öxi og Breiðdalsheiði eru ófærar.

Greiðfært er með suðausturströndinni en nokkuð hvasst og sandfok á Skeiðarársandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert