Páll Jóhann mun sitja hjá

Páll Jóhann Pálsson, alþingismaður.
Páll Jóhann Pálsson, alþingismaður. mbl.is

Páll Jóhann Pálsson alþingismaður hyggst sitja hjá þegar atkvæði verða greidd á Alþingi um frumvarp sjávarútvegsráðherra um kvótasetningu á makríl. Þetta gerir hann vegna tengsla sinna við fyrirtæki í sjávarútvegi. 

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum. 

Yfirlýsing Páls Jóhanns: 

Á næstu vikum verða atkvæði greidd á Alþingi um frumvarp sjávarútvegsráðherra um kvótasetningu á makríl. Vegna tengsla minna við fyrirtæki í sjávarútvegi mun ég sitja hjá við afgreiðslu málsins, líkt og ég hef gert við afgreiðslu annarra mála af sama toga.
 
Í störfum mínum á Alþingi hef ég ekki dregið fjöður yfir þá staðreynd, að tengsl mín við sjávarútveginn eru töluverð. Ég hef verið til sjós, starfað við sjávarútveg í landi og á 5% hlut í útgerðarfélaginu Vísi hf., eins og fram kemur í hagsmunaskráningu á vef Alþingis.

Því til viðbótar er eiginkona mín eigandi og framkvæmdastjóri smábátaútgerðarinnar Marvers ehf.  Þau tengsl eru ekki tilgreind í hagsmunaskráningu, enda er í henni ekki gert ráð fyrir skráningu á eigum maka þingmanna né gefinn möguleiki á að bæta við auka athugasemdum í þeirri skráningu.
 
Vegna ofangreindra tengsla hef ég ekki greitt atkvæði í atkvæðagreiðslum þingsins um kvótamál, veiðileyfa- eða veiðigjaldamál.  Hins vegar hef ég áskilið mér rétt til að taka þátt í umræðu um þessa grundvallaratvinnugrein þjóðarinnar, enda er mikilvægt að sjónarmið þeirra sem þekkja vel til greinarinnar heyrist.
 
Það er mikilvægt að á Alþingi komi fram ólík sjónarmið um mikilvæg mál, enda vilja allir þingmenn vinna þjóðinni gagn. Sjálfur hef ég lýst yfir efasemdum um ágæti þess að hlutdeildarsetja handfæraveiðar smábáta á makríl (sjá t.d. hér).  Sú skoðun mín breytir ekki þeirri staðreynd, að ég mun sitja hjá þegar atkvæði verða greidd um málið.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert