Bætir í vind í nótt

Vindaspá kl. 8 laugardaginn 2. maí.
Vindaspá kl. 8 laugardaginn 2. maí. Grafík/Veðurstofa Íslands

Veðurstofa Íslands spáir austan og norðaustan 5-13 m/s og él N- og A-lands, hvassast á annesjum, næsta sólarhinginn. Hægari breytileg átt annars staðar, skýjað með köflum og stöku él, en bjartviðri SV-til. Bætir í vind í nótt, austan 8-15 m/s á morgun, hvassast með S-ströndinni. Víða dálítil él, en þurrt V-lands. Hiti 1 til 8 stig að deginum, en um eða undir frostmarki fyrir norðan og austan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert