Faldi fíkniefni í nærbuxunum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í nótt ökumann, grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Farþegi í bílnum var með fíkniefna á sér, en sá brá á það ráð að fela þau í nærbuxunum sínum. Töluvert var um akstur undir áhrifa í gærkvöld og nótt, ýmist undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.

Einn þeirra sem grunaður er um akstur undir áhrifum var á 109 kílómetra hraða á Kringlumýrarbrautinni, þar sem hámarkshraði er 80.

Um hálfþrjú var tilkynnt um líkamsárás á veitingahúsi við Laugaveg. Árásarþola var ekið á slysadeild til aðhlynningar, en samkvæmt upplýsingum lögreglu er vitað hverjir voru að verki við árásina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert