Sex ár eru síðan lokað var fyrir umferð í gegnum Rauðalæk í Laugarneshverfi í Reykjavík.
Götunni var lokað eftir niðurstöðu könnunar meðal íbúa árið 2009. Enn standa þar steinblokkir sem nota átti til bráðabigða.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Stefán Agnar Finnsson hjá Samgöngusviði Reykjavíkurborgar er hugmyndin að ganga betur frá lokuninni, hins vegar eru ekki uppi áform þess efnis í náinni framtíð.