Opið er á skíðasvæðinu í Bláfjöllum í dag til kl. 17. „Hér er frábært veður, sól, heiðskírt, frost og nánast logn,“ segir í frétt á vef skíðasvæðisins. „Drífa sig á skíði og njóta dagsins.“
Í fjallinu eru nú 4 m/s, heiðskírt og -0,8 stig.
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd hefur fullt af fólki ákveðið að drífa sig í Bláfjöll enda fer skíðatímabilinu að ljúka.