Ofurölvi kona var handtekin á veitingastað í Kópavogi um kl. hálf fimm í nótt. Konan vildi ekki gefa upp nafn eða kennitölu og sparkaði í lögreglumann á vettvangi, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Konan verður vistuð í fangageymslu þar til hægt verður að ræða við hana.
Þá var karlmaður, erlendur ferðamaður, handtekinn handtekinn við Smiðjustíg í Reykjavík um kl. 2.30 í nótt, grunaður um umferðaróhapp og ölvun við akstur.
Maðurinn var ekki með skilríki og var vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn málsins, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar.