Stuðst verður við skýrsluna

savia segir að forsendur útreikninga Eflu standist skoðun.
savia segir að forsendur útreikninga Eflu standist skoðun. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Efla verkfræðistofa fór í einu og öllu eftir aðferðafræði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, ICAO, við gerð skýrslu um nothæfisstuðul Reykjavíkurflugvallar.

Efla vann skýrsluna fyrir Isavia og segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia, í Morgunblaðinu í dag, að Efla hafi farið eftir aðferðafræði ICAO.

Til þess að meta forsendur útreikninga Eflu fékk Isavia óháða úttektaraðila; veðurfræðing, verkfræðing og sérfræðinga í flugleiðsögu, til að gera óháða úttekt á forsendum útreikninganna. „Þetta er allt alveg hárrétt og byggt á mjög nákvæmum veðurgögnum sem eru tekin á 15 sekúndna fresti,“ segir Guðni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert