Tveir fluttir á slysadeild

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti tvo á slysadeild í Reykjavík eftir umferðarslys á Suðurlandsvegi í dag. Ekki er vitað hver líðan þeirra er.

Slysið varð á Suðurlandsvegi austan við Hvolsvöll. Tilkynning barst frá lögreglunni um klukkan 14:50 í dag. Störfum lögreglu og sjúkraliðs er lokið á vettvangi og búið er að opna Suðurlandsveg aftur fyrir umferð, en honum var lokað um tíma í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert