Sló mann í rot í miðborginni

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Maður var sleginn í rot í miðborg Reykjavíkur í nótt. Gerandi var handtekinn á vettvangi og vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður síðar í dag. Þolandi var hins vegar fluttur á slysadeild til skoðunar.

Töluvert var um ölvunarakstur og akstur undir fíkniefna í nótt. Undir miðnætti var svo tilkynnt um heimilisofbeldi í austurborginni. Gerandi var farinn af vettvangi þegar lögreglumenn komu á staðinn og töldu þolendur ekki ástæðu til að fara á slysadeild. Þá var brotist inn í fyrirtæki í Garðabæ í nótt. Ekki er vitað hverjir voru þar að verki.

Um tvöleytið í nótt var svo tilkynnt um konu sem datt fyrir utan skemmtistað í miðbænum. Konan reyndist óslösuð en var ofurölvi og gat ekki gert grein fyrir dvalarstað sínum. Hún var því vistuð í fangageymslu þar til af henni rennur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert