„Það er búin að vera mikil umræða í bænum varðandi þessi mál og þarna erum við foreldrarnir að krefjast ákveðinna svara,“ sagði Guðrún Björg Gunnarsdóttir í samtali við mbl.is. Þar vísar hún til óánægju meðal foreldra í Hafnarfirði varðandi úthlutun leikskólaplássa í bænum. Hún fer fyrir hópi sem hefur boðað til fundar annað kvöld þar sem bæjarstjórn Hafnarfjarðar verður krafin svara hvers vegna bærinn hafi ákveðið að fullnýta ekki leikskólaplássin í bænum.
Í haust fer stór árgangur í skóla og því skapast rými til að hleypa yngri börnum en þeim sem eru fædd árið 2013 í leikskólana. Það verður ekki gert og hafa svör bæjarins verið á þá leið að verið sé að spara. „Við ætlum að leggja fram áskorun á hendur bæjarstjórninni á morgun og undirskriftarlista.“
„Bæjarstjórnin segir að fjárhagsstaðan sé of erfið. Við höfum alveg skilning á því en það er ekki rétt forgangsröðun að okkar mati. Það er verið að setja peningana í annað en að þjónusta íbúana.“ Guðrún segir þetta vera skerta þjónustu en því sé meirihlutinn ekki sammála. Fundurinn á morgun sé síðasta hálmstráið til að ná eyrum pólitíkusanna.
Nágrannasveitarfélög Hafnarfjarðar taka inn yngri börn eins og pláss leyfir. „Við könnuðum stöðuna hjá Reykjavík, Garðabæ og Kópavogi og þau staðfestu að þau taka inn eftir því sem plássin leyfa.“
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Haraldur Líndal, hefur boðað komu sína á fundinn á morgun. „Einnig hefur formaður fræðsluráðs, Rósa Guðbjartsdóttir, boðað komu sína. Björt framtíð og Sjálfstæðisflokkurinn eru í meirihluta og það eru þeirra eyru sem við viljum ná til með þessum fundi.“
Bæjarstjórnin er að mati Guðrúnar að tefja málin. „Þeir segjast vera að bíða eftir rekstrarúttekt á bænum og einhverri starfsnefnd, sem hefur bara tekið allt of langan tíma í að vinna að nýrri skólastefnu. Við getum bara ekki beðið. Okkar börn eru að lenda á milli, við erum í of mikilli óvissu.“
Hún vonast til að fundurinn verður árangursríkur og almennileg svör fáist. „Samkeppnishæfið er auðvitað gríðarlega lélegt við hin sveitarfélögin ef grunnþjónustan er ekki í lagi. Vonandi verður þetta bara hitafundur á morgun. Við erum að verða leið á þessum svörum sem við fáum ekki,“ sagði Guðrún Björg Gunnarsdóttir.