Þrennt handtekið fyrir kannabisræktun

mbl.is/Júlíus

Lögreglan í Árnessýslu lagði á laugardag hald á hátt í sextíu kannabisplöntur sem voru í ræktun í sumarbústað í Grímsnesi. Einnig var lagt hald á búnað sem notaður var við ræktunina.

Tveir karlar og ein kona voru handtekin og yfirheyrð vegna málsins, sem er í rannsókn sem felst meðal annars í því að finna út styrkleika og nákvæmt magn plantnanna.

Lögreglumenn af höfuðborgarsvæðinu og af Vesturlandi aðstoðuðu við handtöku þremenningana og við húsleit í Borgarnesi en einn hinna grunuðu er búsettur þar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert