Brýnt að snúa vantrausti í tiltrú

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Kristinn

„Hvernig ætlum við að tryggja sambærileg lífskjör í þessu landi og fólki bjóðast í nágrannalöndunum?“ spurði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag. Benti hann á að brottflutningur frá Íslandi hefði aukist á síðasta ári. Brýn þörf væri á því að snúa vantrausti og vantrú í tiltrú á framtíð lands og þjóðar.

„Hvernig ætlum við að hafa sambærileg lífskjör hér og í nágrannalöndunum? Hvernig ætlum við að tryggja velsæld og velferðarþjónustu sem er sambærileg við það sem tíðkast í nágrannalöndunum? Hvernig ætlum við að losa landið úr því andrúmslofti hafta og vonleysis sem við búum við núna? Þetta eru brýnustu verkefni stjórnmálanna á næstu missirum og munu skipta mjög miklu máli um hvernig okkur tekst til um framtíð þjóðarinnar á næstu árum,“ sagði hann ennfremur.

Sagði hann stinga í augun hversu erfiðar aðstæður þjóðin byggi við, óróa á vinnumarkaði og almennt ósætti við ríkisstjórnarstefnu „sem hefur ekki bara grafið undan friði á vinnumarkaði heldur er líka að leggja á ráðin um ójafnari skiptingu þjóðarauðsins en dæmi eru um áður og stefnir að því, til dæmis með frumvarpi um makríl hér á Alþingi, að koma sameiginlegum auðlindum í einkaeign.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert