Sigmundur heldur til Sviss og Liechtenstein

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. mbl.is/Ómar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra mun heimsækja Sviss og Liechtenstein dagana 6.- 8. maí nk. Sigmundur mun taka þátt í ráðstefnu undir yfirskriftinni „Proudly Small“ í St. Gallen háskóla og halda þar ræðu um málefni norðurslóða, að því er segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Ennfremur mun forsætisráðherra taka þátt í pallborðsumræðum um stöðu smáríkja í heiminum ásamt forsætisráðherra Möltu, utanríkisráðherra Gana og ríkisstjóra Delaware fylkis í Bandaríkjunum. Þá mun forsætisráðherra eiga tvíhliða fund með varaforsætisráðherra Sviss, Johann Schneider-Ammann, þar sem tvíhliða samskipti ríkjanna, málefni EFTA, norðurslóðir og staða mála í Úkraínu verða meðal umræðuefna.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna í St. Gallen má finna á vefnum www.symposium.org.

Í heimsókn sinni til Liechtenstein mun forsætisráðherra eiga fund með forsætisráðherra landsins, Adrian Hasler, þar sem málefni EES-samningsins verða ofarlega á baugi. Ennfremur mun forsætisráðherra eiga fund með krónprinsi Liechtenstein og forseta þingsins. Þá mun forsætisráðherra heimsækja háskólann í Liechtenstein og þjóðminjasafnið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert