Spá frosti um allt land

Malín Brand

Norðan og norðaustan 3-13 m/s, hvassast austast. Víða léttskýjað, en skýjað og dálítil él á NA- og A-landi. Hiti 1 til 7 stig að deginum, en um eða undir frostmarki fyrir norðan og austan. Frost um allt land í nótt. Vegir eru greiðfærir á Suður- og Vesturlandi.

Á Vestfjörðum er snjóþekja á Þröskuldum en hálkublettir á Steingrímsfjarðarheiði. Þungfært er norður í Árneshrepp.

Á Norðurlandi eru hálkublettir frá Ketilási í Siglufjörð og á Öxnadalsheiði, hálkublettir og éljagangur eru nokkuð víða á Norðausturlandi en krapasnjór og éljagangur er á Hólasandi.

Hálkublettir og éljagangur eru á Mývatnsöræfum en snjóþekja og éljagangur er á Möðrudalsöræfum en hálka  á Vopnafjarðarheiði. Hálkublettir eða snjóþekja er á fjallvegum á Austurlandi. Öxi og Breiðdalsheiði eru ófærar.

Vegir eru auðir á Suðausturlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert