Tveir óku á 146 km hraða

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á Suðurnesjum hefur staðið rúmlega 60 ökumenn að hraðakstri á undanförnum dögum. Brotin áttu sér stað á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi, en einnig á öðrum akbrautum í umdæminu.

Tveir ökumenn, karlmenn um tvítugt, mældust á mestum hraða. Þeir óku báðir á 146 km/klst. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Hraðaksturinn kostar hvorn þeirra 130 þúsund krónur í fjársekt, sviptingu ökuleyfis í einn mánuð og þrjá refsipunkta í ökuferilsskrá.

Einn ökumannanna sem staðnir voru að hraðakstri var að auki á ótryggðri bifreið og voru skráningarnúmer hennar fjarlægð af þeim sökum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert