Vakti fólk með látum

Lögreglustöðin Hverfisgötu
Lögreglustöðin Hverfisgötu mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Skömmu fyrir klukkan þrjú í nótt var tilkynnt um konu reyna að komast inn í bílskúr við hús í vesturbænum.

Lögreglumenn ræddu við konuna sem var með mikinn hávaða og var búin að vekja fólk með látunum. Hún lofaði að hætta og fóru lögreglumenn af staðnum.

Lögreglumennirnir þurftu að fara og sinna öðru útkalli en þá var aftur haft samband vegna ónæðis vegna konunnar sem neitaði að gefa upp nafn og hvar hún byggi. Að lokum var hún færð á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem hún er vistuð í fangageymslu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert