Veittu bifhjólamanni eftirför

Ökumaður bifhjóls mældist á 144 km hraða á Reykjanesbraut í …
Ökumaður bifhjóls mældist á 144 km hraða á Reykjanesbraut í gærkvöldi. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Ökumaður bifhjóls mældist á 144 km hraða á Reykjanesbraut í gærkvöldi, þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Lögreglan á Suðurnesjum gaf honum stöðvunarmerki en hann gaf þá í og ók áleiðis til Keflavíkur.

Sett var upp lokun á Reykjanesbrautinni við Þjóðbraut en ökumanninum tókst að komast fram hjá henni og hélt áfram ofsaakstrinum. Á Rósaselstorgi, nærri Flugstöð Leifs Eiríkssonar, hafði verið sett upp önnur lokun, en bifhjólamaðurinn ók þá á móti umferð um hringtorgið og hélt út á Sandgerðisveg.

Lögregla veitti bifhjólinu eftirför og sá hvar því var beygt út á veg sem liggur að ratsjárstöðinni á Miðnesheiði. Þar nam ökumaðurinn, tæplega fertugur karlmaður, staðar og var handtekinn. Var þá afturhjólbarði hjólsins löðrandi í bensíni og olíu, sem olli því að líkindum að hann þurfti að stoppa. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert