Gleðigjafar á ferð

Skilaboðin eru jákvæð.
Skilaboðin eru jákvæð. Af vef Hafnarfrétta

Tvo morgna í röð hafa íbúar í Þorlákshöfn vaknað upp við góðan draum, ef svo má segja. Í gærmorgun var búið að líma skemmtileg og jákvæð skilaboð á bíla um allan bæinn og í morgun var búið að líma miða með samskonar skilaboðum við hús bæjarbúa.

Greint er frá málinu í Hafnarfréttum og þar kemur fram að ekki er enn vitað hver gleðigjafinn, eða gleðigjafarnir, eru.

„Enn er óljóst hverjir standa þarna að verki en það geta allir verið sammála um að það sé virkilega skemmtilegt að vakna og finna slíkan miða. Uppátæki sem þetta lífgar upp á tilveruna og sýnir okkur hvað það er gott að búa í Þorlákshöfn,“ segir í frétt Hafnarfrétta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert