Útlánin til þeirra félaga sem ákært er fyrir voru óvenjuleg en lögleg. Þetta sagði Bjarki Diego, fv. framkvæmdastjóri útlána hjá Kaupþingi, við yfirheyrslur í héraðsdómi í dag. Hann er einn ákærðu í stóra markaðsmisnotkunarmáli bankans, en hann og Björk Þórarinsdóttir eru sökuð um umboðssvik við útlán til félaganna Mata, Desulo og Holts.
Bjarki ávarpaði dóminn við upphaf yfirheyrslnanna og sagði þá að nokkur atriði í ákærunni væru röng og að ekki væri getið um önnur mál sem skiptu máli. Saksóknari hefur meðal annars sagt að bankinn hafi lánað félögunum til að kaupa bréf í bankanum án annarra trygginga en bréfin sjálf. Bjarki sagði þetta vera rangt. Þannig hafi eins milljarða hlutur í Skiptum komið vegna kaupa Holts og þá hafi verið full trygging fyrir hinum kaupunum.
Bjarki sagði einnig að saksóknari hefði í málinu gefið í skyn að bankinn hefði greitt út peninga, en það væri fjarri sanni. Í raun væri þetta sala eigin viðskipta bankans og því hafi peningarnir sem voru lánaðir út komið inn í bankann aftur og aðeins verið að flytja peninga á milli reikninga. Bæði eigin viðskipti og útgreiðsla lánsins voru undir fjárstýringu og því var þetta „ekki einu sinni hreyfing milli hæða.“
Með þessu sagði Bjarki að hann hafi ekki stuðlað að útgreiðslu láns frá bankanum og því hafi háttsemi hans ekki verið til þess fallin að valda bankanum fjárhagstjóni.
Í tilfelli Holts sagði Bjarki að eigandi þess félags, Skúli Þorvaldsson, hafi verið svo stór skuldari hjá bankanum að hann hafi ekki haft heimild til að lána félaginu.
Varðandi útlánið til Desulo var Bjarki í þeirri lánanefnd sem tók lánið fyrir. Hann sagði aftur á móti að þegar væri búið að ganga frá sölu bréfanna og því hafi verið lítið sem lánanefndin færi að gera til að stoppa það. Þar hafi verið horft til trygginga sem voru bréfin sjálf og það hafi verið nægilegt samkvæmt reglum bankans og hann því samþykkt. Tók hann fram að ekki væri um neina veðþekju að ræða, en samt 100% trygging og það væri full heimild fyrir lánveitingunni. Lánið væri því óvenjulegt en löglegt.
Hér greinir Bjarka nokkuð á við forstjóra félagsins, Hreiðar Má Sigurðsson, sem sagði að lánanefndin hefði getað stoppað lánveitingar og hefði verið sjálfstæð. Við yfirheyrsluna í dag kom aftur á móti fram að Bjarki hafi talið að stjórnendur bankans hafi verið búnir að ganga frá sölu bréfa í Kaupþingi til félaganna og því hefði neitun frá lánanefnd getað skapað bótaskyldu.