Viðræðuslit vegna mikils ágreinings

Þúsundir hafa lagt niður störf og ekki útlit fyrir að …
Þúsundir hafa lagt niður störf og ekki útlit fyrir að kjaradeilur leysist í bráð. mbl.is/Styrmir Kári

Slitnað hefur upp viðræðum Rafiðnaðarsamband Íslands, Matvís, Samiðn, Grafía - stéttarfélagi í prent- og miðlunargreinum, Félag hársnyrtisveina og Félagi vélstjóra og málmtæknimanna við Samtök atvinnulífsins. 

Fram kemur í tilkynningu, að fulltrúar ofangreindra stéttarfélaga og sambanda hafi á undanförnum vikum átt í viðræðum við SA um endurnýjun kjarasamninga.

„Á fundi viðræðunefndar með fulltrúum SA í dag var niðurstaðan að það hefði ekki tilgang að halda viðræðum áfram vegna árangursleysis og mikil ágreinings um launalið samninga.

Viðræðunefndin beinir því til stéttarfélaganna að þau hefji nú þegar undirbúning að atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna um verkfallsheimild,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert