Ríkisskattstjóri stofnun ársins

Höfuðstöðvar Ríkisskattstjóra við Laugaveg.
Höfuðstöðvar Ríkisskattstjóra við Laugaveg. Af vef Ríkisskattstjóra

Ríkisskattstjóri, Menntaskólinn á Tröllaskaga og Héraðsdómur Suðurlands eru stofnanir ársins 2015 samkvæmt könnun Stéttarfélags í almannaþjónustu (SFR). Niðurstöður úr könnuninni voru kynntar í Hörpunni fyrr í kvöld.

Þetta er í tíunda sinn sem SFR velur Stofnun ársins en könnunin er unnin af Gallup í samstarfi við VR, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og efnahags- og fjármálaráðuneytið og er ein sú stærsta sinnar tegundar á landinu. Alls fengu tæplega 50 þúsund starfsmenn á almennum og opinberum vinnumarkaði könnunina senda og er val á Stofnunum ársins byggt á svörum tæplega 12.000 starfsmanna hjá ríki og sjálfseignarstofnunum.

Ríkisskattstjóri er sigurvegari í flokki stórra stofnana sem hafa 50 starfsmenn eða fleiri en Menntaskólinn á Tröllaskaga er stofnun ársins í flokki meðalstórra stofnana þar sem starfsmenn eru 20-49 talsins. Héraðsdómur Suðurlands bar sigur út býtum annað árið í röð í flokki minni stofnana þar sem starfsmenn eru færri en 20.

Að þessu sinni fengu þrjár stofnanir titilinn Hástökkvari ársins 2015 en þær hækka allar jafn mikið milli ára. Þær eru Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum og Minjastofnun Íslands.

Jafnframt voru valdar fyrirmyndastofnanir í hverjum flokki fyrir utan stofnanir ársins.

Í flokki stærstu stofnana eru fimm fyrirmyndarstofnanir. Þær eru auk Ríkisskattstjóra, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Reykjalundur, Íslenskar orkurannsóknir og Fjölbrautaskólinn við Ármúla.

Í flokki meðalstórra stofnana eru fyrirmyndarstofnanirnar einnig fimm. Þær eru auk Menntaskólans á Tröllaskaga, Einkaleyfastofa, Fjölbrautarskóli Snæfellinga, Landmælingar og Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu.

Í flokki minnstu stofnananna eru fyrirmyndarstofnanirnar þrjár, þ.e. Héraðsdómur Suðurlands og Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála og Persónuvernd.

Samkvæmt tilkynningu frá SFR eru mældir þættir á borð við ánægju og stolt, starfsanda, trúverðugleika stjórnenda, launakjör, sjálfstæði í starfi, vinnuskilyrði, sveigjanleika vinnu og ímynd stofnunar í könnunni. 

„Það er ánægjulegt að sjá að fleiri stofnanir blanda sér í toppbaráttuna en áður. Einkum er áberandi að framhaldsskólar landsins koma betur út úr könnuninni nú. Heildareinkunn allra þátta í könnuninni stendur nánast í stað og hefur verið nokkuð svipuð undanfarin ár. Einkunnin fyrir þáttinn ánægja með launakjör er hærri nú hjá framhaldsskólunum og má væntanlega rekja hærri heildareinkunn og betri árangur í könnuninni til þess,“ segir í tilkynningu. 

Heildareinkunnin í könnuninni er hjá stofnunum á sviði löggæslu, dómstóla og fangelsa, en hæst er hún meðal stofnana í verslun og þjónustu. Þá sýna niðurstöðu einnig að þeir sem hafa mannaforráð gefa yfirleitt hærri einkunn en þeir hafa þau ekki. Einnig gefa stjórnendur hærri einkunn en flestar aðrar starfstéttir að undanskyldu sölu- og afgreiðslufólki.

Samkvæmt tilkynningu eru konur sem fyrr heldur ánægðari á heildina litið. Þær mælast ánægðari í sjö af átta heildarþáttum könnunarinnar. Ánægja með launakjör eru hins vegar heldur meiri hjá körlum en konum. Þó er athyglisvert að sjá að það dregur saman á milli kynjanna í afstöðu til launa á milli ára.

Enn er talsverður munur á milli opinberra starfsmanna og félagsmanna VR ef kannanir félaganna eru bornar saman og eru VR félagar ánægðari með alla ofangreinda þætti í könnuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert