Árni dregur ummæli um Björgólf til baka

Björgólfur Thor Björgólfsson.
Björgólfur Thor Björgólfsson. mbl.is/RAX

Árni M. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, hefur dregið til baka ummæli sem hann lét falla um kaupsýslumanninn Björólf Thor Björgólfsson í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis.

Björgólfur Thor greinir frá þessu á bloggsíðu sinni í dag. Þar segir, að hann hafi fyrir nokkru skrifað bréf til Árna og farið fram á að hann drægi ummælin til baka.

„Í skýrslu RNA var haft eftir Árna að allir stjórnendur bankanna hafi vísvitandi logið að stjórnvöldum. Og verstur hafi ég verið, ég hafi sagt öðrum ósatt líka og þeir sagt ráðherranum að ekkert væri að marka það sem ég segði. Þessar lýsingar skutu svo aftur upp kollinum í bók Árna, Frá bankahruni til byltingar, sem gefin var út haustið 2010.

Eins og við mátti búast voru þessar lýsingar gripnar á lofti af fjölmiðlum og hafa valdið mér ómældum vanda. Það er illt að sitja undir ásökunum um að hafa komið óheiðarlega fram á ögurstundu.

Ég gerði mér grein fyrir að þessa síðustu helgi fyrir hrun bankanna mæddi mikið á fjármálaráðherra og eðlilegt að erfitt væri að greina hið rétta í hita leiksins. Ég var hins vegar sannfærður um að Árni væri sá drengskaparmaður að hann væri reiðubúinn til að endurskoða ummæli sín, í ljósi þeirra upplýsinga sem komið hafa fram á síðustu árum um raunverulega stöðu mála á síðustu dögum fyrir hrun og hver hefði sagt þar satt og rétt frá,“ skrifar Björgólfur á bloggsíðu sína.

Hann tekur fram, að Árni hafi ekki brugðist vonum hans og sent svarbréf. Það er birt í heild á heimasíðu Björgólfs, með leyfi Árna. Það er svohljóðandi:

„Sæll Björgólfur Thor,

Varðandi ummæli mín við yfirheyrslur hjá Rannsóknarnefnd Alþingis hefur þróun mála eftir hrun breytt skoðun minni á þeirri atburðarás sem  ummælin fjalla um. Ég met það svo að staða þín hafi þá verið fjárhagslega sterkari en ég hélt og mat þitt á stöðu Kaupþings betra heldur en annarra og því ekki verið  ástæða fyrir mig að ætla að þú hafir verið að segja ósatt um möguleika þína á því að afla fjár fyrir nýjan sameinaðan banka. Örlög Kaupþings dagana á eftir sýna hinsvegar að þeir fjármunir hefðu tapast og  ekki dugað til  björgunar úr því sem komið var á þeim tíma.

Mér  þykir afar leitt ef ummæli mín hafa valdið þér vandræðum og alveg sjálfsagt að þú birtir þetta svar mitt á heimasíðu þinni.“

Árni M. Mathiesen.
Árni M. Mathiesen. mbl.is/Eggert
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert