Bílvelta á Biskupstungnabraut

mbl.is/Hjörtur

Bílvelta varð á Biskupstungnabraut við afleggjarann að Laugavatni um klukkan hálf fimm í morgun. Bílstjóri var einn í bílnum, en er ekki talinn hafa slasast alvarlega að sögn lögreglu.

Að sögn lögreglu var mikil snjókoma á svæðinu og vegurinn blautur. Er bílstjóri því talinn hafa misst stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann valt og lenti utan vegar.

Bílstjórinn hringdi sjálfur í lögreglu, en sat fastur í bílnum þegar lögreglumenn komu á staðinn. Lögreglumönnum tókst þó að ná honum út úr bílnum og var hann fluttur með til skoðunar á sjúkrahús í kjölfarið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert