Bílvelta í Borgarfirði

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Bílvelta varð við Skeljabrekku á Borgarfjarðarbraut í hádeginu í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Borgarnesi voru tveir fluttir til aðhlynningar á heilsugæslunni á Borgarnesi eftir umferðaróhappið. Meiðsli þeirra eru þó minniháttar.

Að sögn lögreglu er bíllinn mikið skemmdur og verður hann fjarlægður af slysstað fljótlega. 

Tildrög slyssins eru óljós að svo stöddu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert