Illugi falli frá áformunum

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra.
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra. mbl.is/Ómar Óskarsson

Framsóknarfélagið í Fjallabyggð hefur skorað á Illuga Gunnarsson, menntamálaráðherra, að falla frá þeim áformum að sameina Menntaskólann á Tröllaskaga við Menntaskólann á Akureyri og Menntaskólann á Húsavík. 

Er ráðherra hvattur til að leita annarra leiða við að finna þær úrbætur sem hann telur þörf á í málefnum framhaldsskólanna og leyfa þar með MTR að halda þeirri sérstöðu sem hann er búinn að skapa sér. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Segir þar jafnframt að skólinn hafi með tilkomu sinni verið mikil lyftistöng í Fjallabyggð sem og á Tröllaskaganum öllum. Mikil fjölbreytni hafi verið í námsframboði skólans og skólinn hafi auðveldað einstaklingum á svæðinu að ljúka námi. „Það hlýtur að sýna okkur það að skólinn stendur svo sannarlega undir þeim væntingum sem til hans eru gerðar hvað varðar gæði náms og fjölbreytni.“

„Við teljum að fyrirhugaðar breytingar Menntamálaráðuneytisins geti haft í för með sér að þær geti orðið ógn við starfsemi skólans, sem í dag er til mikillar fyrirmyndar, geti orðið til þess að menntunarstig í sveitarfélaginu lækki og þar með leitt til þess að stuðla að fólksfækkun á svæðinu.“

Frétt mbl.is: „Þetta er myrkra­verk“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert