Íslensku moskunni lokað?

Moskan - Fyrsta moskan í sögulega hluta Feneyja. Cristoph Büchel
Moskan - Fyrsta moskan í sögulega hluta Feneyja. Cristoph Büchel Ljósmynd Bjarni Grímsson

Íslenska skálanum í Feneyjum hefur verið lokað. Fram­lag Íslands, „Mosk­an, fyrsta mosk­an í Fen­eyj­um“ hef­ur vakið mikla at­hygli og gagn­rýn­in bæði verið já­kvæð og nei­kvæð. Fen­eyjat­víær­ing­ur­inn, mynd­list­ar­hátíð í Fen­eyj­um, stend­ur fram í nóv­em­ber.

Vefútgáfa ítalska blaðsins la Nuova greinir frá því að skálanum hafi verið lokað í dag, fimmtudag. Ástæða lokunarinnar er meðal annars sögð vera til að tryggja öryggi en þá kemur einnig fram að moskan hafi verið notuð til trúarathafna og þar hafi margir safnast saman. 

Líkt og kemur fram í Morgunblaðinu í dag fóru borg­ar­yf­ir­völd í Feneyjum fram á að fá öll gögn um sýn­ing­una og um af­helg­un kirkj­unn­ar í gær, sem Mosk­an er sett upp í, og ef þau væru ekki full­nægj­andi var hótað að loka skál­an­um.

Dregið úr bænahaldi í Moskunni

Ekki lokað þrátt fyrir hótanir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert