Ógnaði starfsmanni verslunar með hnífi

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Rán var framið í verslun 10-11 í Grímsbæ við Bústaðaveg á sjötta tímanum í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu elti starfsmaður verslunarinnar þjófinn sem ógnaði starfsmanninum með hnífi og komst þá undan.

Að sögn Gunnars Hilmarssonar, aðalvarðstjóra á lögreglustöð Austurbæjar, er lögregla með lýsingu á manninum en ekki er vitað hver var á ferð. Málið er í rannsókn.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert