Tjón vegna vatnsleka 2,4 milljarðar

Slökkviliðsmenn sinna reglulega útköllum vegna vatnsleka.
Slökkviliðsmenn sinna reglulega útköllum vegna vatnsleka. mbl.is/Þórður

Vatnstjón á heimilum og í fyrirtækjum nam vel á þriðja milljarði króna 2014 og varð langmestur hluti tjónsins á heimilum. Heildarfjöldi tilvika er 7.387 eða að meðaltali 20 á degi hverjum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mannvirkjastofnun.

Þar segir að í 1.442 tilvikum reyndist tjónið ekki bótaskylt. Langalgengast er að tjón í hverju tilviki sé innan við ein milljón króna en þó nam kostnaður í 418 tilvikum einni milljón eða meira og í tugum tilvika nam tjónið þremur milljónum króna eða meira. Heimilin bera talsverðan hluta kostnaðarins sjálf.

Bent er á, að þetta komi fram í tölum tryggingafélaganna sem hafi verið teknar saman af óháðum aðila fyrir samstarfshóp um varnir gegn vatnstjóni.

„Vatnstjón nam alls um 2,4 milljörðum króna en þar af er eigin áhætta tryggingataka um 320 milljónir króna sem að langmestu leyti fellur á einstaklinga.Tryggingafélögin bættu einstaklingum tjón sem nemur um 1,7 milljörðum króna en fólk situr sjálft uppi með nær 300 milljónir í eigin áhættu.

Kostnaður við hvert bætt tjón nemur að meðaltali tæplega 300 þúsund krónum. Sé meðaltalið það sama fyrir hvert tjón sem ekki var bótaskylt má ætla að heimilin hafi tekið á sig um 430 milljónir króna í óbætt tjón. Að viðbættri eigin áhættu eru bein fjárútlát heimilanna vegna vatnsleka þá yfir 700 milljónir króna. Þá er ótalið rask, óþægindi og jafnvel heilsutjón sem getur hlotist af vatnsleka, raka og myglu. Dæmi eru um að fólk þurfi að yfirgefa heimili sín dögum og vikum saman vegna vatnstjóns,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir, að langalgengast sé að tjón í einstökum tilvikum sé innan við milljón króna. En dæmi eru um mjög kostnaðarsöm tilvik:

  • Tjón meira en 4 milljónir: 22
  • Tjón á bilinu 3-4 milljónir: 24
  • Tjón á bilinu 2-3 milljónir: 56
  • Tjón á bilinu 1-2 milljónir: 316

Tilvik þar sem tjón er milljón krónur eða meira voru því 418 talsins.

Dæmi um vatnstjón og kostnað

Vatnstjón verður af ýmsum orsökum og kostnaður vegna þeirra er mjög mismunandi, eins og dæmin hér að neðan sýna. Unnt hefði verið að koma í veg fyrir þau öll með aðgæslu, viðhaldi og vandaðri frágangi:

Gleymdist að skrúfa fyrir baðið
Gleymdist að skrúfa fyrir þegar látið var renna í bað. Vatn flæddi yfir eikarparket á gangi og inn í stofu. Parketið reyndist ónýtt. Þurrkfyrirtæki kom á staðinn og stóð þurrkun yfir í fjóra daga. Fimm dögum eftir tjón var búið að leggja nýtt parket.
Tjón: 700.000 kr.

Leki við amerískan kæliskáp
Vatnsleki varð þegar tenging við amerískan kæliskáp gaf sig í nýju húsi. Parket bólgnaði upp. Iðnaðarmenn þurrkuðu og fjarlægðu parket og neðsta hluta gifsveggjar. Mygla var farin að myndast en var upprætt strax. Parket var endurnýjað að hluta og slípað og lakkað.
Kostnaður: 1.358.166 kr.

Viðhaldi ekki sinnt
Vatn frá blöndunartæki lak inn í vegg. Merki um raka komu í ljós á vegg og á parketi á gangi. Tjónið fékkst ekki bætt því sýnt þótti að viðhaldi hefði ekki verið sinnt. Kostnaður húseiganda líklega á bilinu 160.000-200.000 kr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert