Afhentu ríkissáttasemjara bók um letina

Gunnlaugur Bjarnason og Guðjón Ragnar Jónasson starfsmenn bókaútgáfunnar Sæmundar afhentu …
Gunnlaugur Bjarnason og Guðjón Ragnar Jónasson starfsmenn bókaútgáfunnar Sæmundar afhentu Magnúsi Péturssyni ríkissáttasemjara og Elísabetu Ólafsdóttur skrifstofustjóra eintök af Réttinum til letinnar. Eintökum var einnig komið á skrifstofu Samtaka atvinnulifsins. Ljósmynd/Alda

Útgáfufélagið Sæmundur afhenti samningsaðilum í yfirstandandi kjaradeilum eintök af nýrri bók útgáfunnar, Réttinum til letinnar eftir 19. aldar sósíalistann Paul Lafargue.

„Án þess að nokkur afstaða sé tekin í kjaradeilum þá er mikilvægt að samningsaðilar þekki og skilji þau sjónarmið sem Lafargue setur fram í riti sínu,“ segir í fréttatilkynningu frá útgáfunni. „Hér deilir höfundur á langan vinnudag og almenna dýrkun á vinnunni. Hann rökstyður að með styttri vinnuviku megi auka framleiðni sem er aldrei nógsamlega brýnt fyrir hinum vinnuglöðu Íslendingum. En þetta 130 ára vakningarrit er einnig ádeila á sóun og græðgi iðnaðarsamfélagsins og á fullt erindi til okkar.“

Rétturinn til letinnar var eitt af þekktari barátturitum verkalýðssinna Evrópu á 19. öld og hefur verið gefið víðsvegar um heiminn. Það hefur þó aldrei komið út á íslensku fyrr en nú að Guðmundur J. Guðmundsson sagnfræðingur réðist í þýðingu þess.

Það er von útgefenda að sjónarmið Lafargue megi verða til að opna augu Íslendinga fyrir þeim grundvallarsjónarmiðum að dagvinnustundir launafólks eigi að duga til sómasamlegrar framfærslu, segir í fréttatilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert