Segja launakröfurnar hógværar

Í framhaldi af árangurslausum samningafund í gær vill Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga árétta að launakröfur hjúkrunarfræðinga eru hógværar.

Í yfirlýsingu frá félaginu segir að það fari fram á að dagvinnulaun hjúkrunarfræðinga séu samanburðarhæf við laun sambærilegra háskólamenntaðra stétta sem starfa hjá ríkinu og ábyrgð þeirra sé metin til launa. Nú sé launamunurinn 14-25% „og við það geta hjúkrunarfræðingar ekki unað.“

Félagið segir að það sé á ábyrgð ríkisins að viðhalda „sómasamlegu heilbrigðiskerf“i með þátttöku hjúkrunarfræðinga. „Þrátt fyrir það hefur samninganefnd ríkisins ekkert gert til þess að koma á móts við eðlilegar kröfur hjúkrunarfræðinga,“ segir í yfirlýsingunni.

„Með samningsvilja getur ríkið komið í veg fyrir að allsherjarverkfall hjúkrunarfræðinga hefjist þann  27. maí næstkomandi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert