Á Alþingi er rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða enn rædd nú á miðnætti. Enn eru 17 þingmenn á mælendaskrá og ljóst að þingfundur mun standa eitthvað fram eftir nóttu.
Í fyrramálið eru nefndarfundir í umhverfis- og samgöngunefnd og velferðarnefnd Alþingis áður en þingfundur er svo á dagskrá klukkan 10.