Þúsund miðum bætt við í Litahlaupið

Ljósmynd/The Color Run

Búið er að bæta við eitt þúsund miðum og einu tonni af litapúðri fyrir The Color Run, litahlaupið svokallaða, sem fram fer 6. júní næstkomandi.

Aðsókn í hlaupið hefur verið meiri en skipuleggjendur höfðu þorað að vona og á dögunum var fjöldi skráðra orðinn meiri en gert var ráð fyrir. Því var brugðist við og gerðar ráðstafanir til að taka á móti meiri fjölda í hlaupið og þótti einnig nauðsynlegt að panta meira litapúður fyrir hlaupið, að því er segir í fréttatilkynningu.

„Hlaupið er þannig að eftir hvern kílómetra í þessu fimm kílómetra hlaupi þá fara þátttakendur í gegnum litahlið þar sem starfsmenn hlaupsins úða yfir þá ákveðnum lit,“ segir Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri The Color Run á Íslandi.

„Við vorum búin að panta sex tonn af litapúðri sem kemur til okkar í gámi alla leið frá Indlandi og til þess að geta tekið á móti fleiri þátttakendum, þá þurfum við að panta meira litapúður. Það eru aðeins tvær vikur í hlaupið þannig að Indland var ekki valkostur en við náðum að semja við samstarfsaðila okkar sem halda hlaupið í Danmörku og fáum heilt tonn þaðan. Það vildi svo vel til að þeir notuðu sömu liti og við ætlum að nota í okkar hlaupi, þ.e. blátt, grænt, gult og bleikt litapúður.“

Upphaflega var gert ráð fyrir sex þúsund hlaupurum í The Color Run auk þess sem börn átta ára og yngri fá frítt í hlaupið í fylgd með fullorðnum. „Það hefur verið mikill áhugi á hlaupinu alveg frá því að það spurðist út að það yrði haldið hér á landi í sumar, en síðustu daga hafa skráningar verið meiri en við höfðum þorað að vona.

Þegar við sáum í hvað stefndi fórum við að skoða möguleikana á að koma meira litapúðri til landsins og sem betur fer tókst það þannig að við gátum opnað fyrir 1.000 þátttakendur til viðbótar, en miðað við skráningar síðustu daga þá munu þeir miðar klárast á næstu dögum þannig að það fer hver að verða síðastur að skrá sig í hlaupið,“ segir Davíð Lúther.

Hlaupið verður í miðbæ Reykjavíkur og verður bæði ræst út og komið í mark í Hljómskálagarðinum. Að loknu hlaupi verður mikil tónlistarhátíð á sviði með dönsurum og plötusnúð sem kemur frá Danmörku. Í ár er The Color Run hlaupið í meira en 300 borgum í rúmlega fimmtíu löndum um heim allan.

Ljósmynd/The Color Run
Ljósmynd/The Color Run
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert