Fóðurbíll fór á hliðina

mbl.is/Þórður Arnar

Hringvegurinn er nú lokaður við Kröflu hjá Mývatni eftir að fóðurbíll valt. Lögreglan á Húsavík er nú á leið á slysstað.

Að sögn lögreglunnar slasaðist enginn en verið er nú að leita leiða til að koma fóðurbílnum af veginum svo hægt sé að opna aftur fyrir umferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert