Mun skrölta á þremur hjólum

Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að nokkuð hafi verið um afbókanir ferðamanna og fari þeim fjölgandi.

„Eigum við ekki að segja að það verði þrjú hjól undir bílnum, en áfram skrölti hann þó,“ segir Skapti aðspurður um áhrif fyrirhugaðra verkfallsaðgerða í næstu viku. „Það er ljóst að það er töluvert af afbókunum. En síðan eru einnig þeir sem höfðu fyrirhugað að koma til landsins með skömmum fyrirvara sem halda að sér höndum. Sumir þeirra bíða átekta en aðrir fara eitthvað annað, þar sem Ísland á í harðri samkeppni við önnur lönd. Bara umræða um aðgerðir hefur mikil áhrif,“ segir Skapti.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert