Ölvaður og ógnandi á bráðamóttökunni

Maðurinn var með ógnandi framkomu á bráðamóttökunni í Fossvogi.
Maðurinn var með ógnandi framkomu á bráðamóttökunni í Fossvogi. mbl.is/Ómar Óskarsson

Karlmaður var í morgun handtekinn á slysa- og bráðamóttökunni í Fossvogi þar sem hann var ölvaður með ólæti og ógnandi framkomu.

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu átti maðurinn ekkert erindi þangað og var lögreglan kölluð til um klukkan 6 í morgun. Varð hann ekki við ítrekuðum fyrirmælum lögreglunnar um að yfirgefa vettvang og var hann því handtekinn.

Var hann vistaður í fangageymslu vegna málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert