Strætó fauk út af veginum

Ljósmynd/Ólafur Ólafsson

Strætisvagn fór út af veginum rétt hjá Akranesi snemma í morgun. Vindhviða feykti vagninum af veginum og hafnaði hann ofan í skurði, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Engir farþegar voru í vagninum og slapp bílstjórinn ómeiddur, að sögn lögreglunnar á Akranesi. Óvíst er um skemmdir á vagninum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert