Unnið að því að losa fóðurbíl

Fóðurbíllinn lokar veginum.
Fóðurbíllinn lokar veginum. Ljósmynd/Gísli Rafn Jónsson

Dælubíll vinnur nú að því að dæla fóðrinu úr fóðurbíl sem valt við Kröflu hjá Húsavík í morgun en hringvegurinn er lokaður þar. Samkvæmt lögreglunni á Húsavík þarf að tæma bílinn áður en hægt er að huga að því að færa hann til og hleypa umferð framhjá. 

Vegurinn er eitthvað skemmdur og hann er afar skítugur. Lögreglan á Húsavík býst við því að hægt verði að opna veginn eftir þrjár klukkustundir.

Fyrri frétt mbl.is um málið.

Ljósmynd/Gísli Rafn Jónsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert