Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra bindur vonir sínar við að frumvörp um losun gjaldeyrishafta verði kynnt ríkisstjórninni í lok vikunnar.
„Ég ætla ekki að koma með þau fyrr en þau eru fullkláruð. Þetta er mikill yfirlestur og í mörg horn að líta. Það eru mörg smáatriðin sem þarf að líta yfir,“ sagði Bjarni eftir ríkisstjórnarfund í hádeginu í dag. Frumvörpin voru ekki til umræðu á fundinum.
Hann sagðist vera tregur til að lofa ákveðnum dagsetningum í þessum efnum. „Ég hef lengi vonað að það gæti gerst í þessari viku og ég er ekki búinn að gefa þá von upp á bátinn.“
Frumvörpin eru enn í lokayfirlestri í fjármálaráðuneytinu.