Krefur menntamálaráðherra svara

Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis
Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis mbl.is/Eggert

Umboðsmaður Alþingis hefur sent Illuga Gunnarssyni, mennta- og menningarmálaráðherra, bréf þar sem hann óskar eftir svörum ráðherra við tilteknum spurningum um sameiningu Námseignastofnunar og Námsmatsstofnunar í nýja ríkisstofnun, Menntamálastofnun.

Í bréfinu kemur meðal annars fram að af þeim gögnum sem umboðsmaður hefur fengið afhent verði ráðið að starfsemi, skipulag og húsnæðismál Námsmatsstofnunar og Námsgagnastofnunar, undir stjórn sameiginlegs forstöðumanns, taki nú þegar að ýmsu leyti mið af hinni áformuðu sameiningu stofnananna þrátt fyrir að lagafrumvarp um þá breytingu, og þar með lögbundin verkefni þessara stofnana, hafi ekki hlotið samþykki Alþingis.

Segir umboðsmaður að það skipti máli að „Alþingi fái í umboði borgaranna fullnæglandi tækifæri til þess að taka afstöðu til þess á hvern veg það kýs að breyta núgildandi lögum áður en of langt er gengið í að undirbúa og framkvæma þann vilja stjórnvalda sem lýsir sér nú í fyrirliggjandi lagafrumvarpi“.

Fjallað er um málið á vef umboðsmanns.

Starfsmaður Námsgagnastofnunar kvartaði

Umboðsmaður lauk nýlega athugun á kvörtun frá starfsmanni Námsgagnastofnunar sem lýsti því að þegar væri unnið að breytingum á skipulagi og starfsemi stofnananna tveggja sem tækju mið af því að starfsemi þeirra og ákveðin verkefni frá menntamálaráðuneytinu yrðu færð í hina nýju stofnun, Menntamálastofnun.

Þannig hefði sérstakar verkefnatjóri verið ráðinn til að vinna að málinu, störf og starfsmenn hefðu verið fluttir úr ráðuneytinu til Námsmatsstofnunar og unnið væri að undirbúningi flutnings þeirrar stofnunar í sama húsnæði og nú hýsti Námsgagnastofnun, þ.e. frá Reykjavík til Kópavogs.

Þá hefði nýr forstöðumaður Námsmatsstofnunar einnig verið settur forstöðumaður Námsgagnastofnunar en starfslokasamningur gerður við forstöðumann þeirrar stofnunar. Í auglýsingu á starfi forstöðumanns Námsmatsstofnunar hefði þá þegar komið fram að hinum nýja forstöðumanni væri ætlað að verða forstjóri Menntamálastofnunar þegar hún hefði verið stofnuð.

Enn til meðferðar í þinginu

Umrædd kvörtun barst umboðsmanni í nóvember síðastliðnum en frumvarp um Menntamálastofnun var lagt fram á Alþingi 9. desember síðastliðinn og er nú til meðferðar í þinginu.

Þar eru meðal annars lagðar til breytingar á núgilandi lögum um skipulag og stjórn Námsgagnastofnunar og Námsmatsstofnunar og mælt fyrir um flutning verkefna þeirra, og þá mögulega einnig tiltekinna verkefna frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, til hinnar nýju stofnunar.

Umboðsmaður hefur nú tilkynnt starfsmanninum að hann fái ekki séð að á þessu stigi hafi verið teknar ákvarðanir sem raskað hafi réttindum eða stöðu hans með þeim hætti að tilefni sé til frekari athugunar á málinu á þeim grundvelli.

Geta haft verulega þýðingu fyrir nemendur

Hins vegar varð athugun umboðsmanns honum tilefni til þess að senda mennta- og menningarmálaráðherra bréf 19. maí, eins og áður var nefnt. Eru spurningar umboðsmanns settar fram til þess að hann geti tekið afstöðu til þess hvort tilefni sé til þess að fjalla um þau atriði sem spurt er um að eigin frumkvæði, samkvæmt heimild í 5. gr. laga um umboðsmann Alþingis eða í tengslum við önnur mál sem umboðsmaður er með til athugunar.

Í lok bréfsins til ráðherrans segir umboðsmaður:

„Þau verkefni sem Námsgagnastofnun og Námsmatsstofnun fara með lögum samkvæmt og framkvæmd þeirra getur haft verulega þýðingu fyrir þá nemendur sem í hlut eiga og forsjáraðila þeirra sem og staðbundin yfirvöld skólamála. Hér skiptir því máli að Alþingi fái í umboði borgaranna fullnægjandi tækifæri til þess að taka afstöðu til þess á hvern veg það kýs að breyta núgildandi lögum áður en of langt er gengið í að undirbúa og framkvæma þann vilja stjórnvalda sem lýsir sér nú í fyrirliggjandi lagafrumvarpi.“

Bréf umboðsmanns Alþingis til mennta- og menningarmálaráðherra

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra.
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert