Kannabislykt barst langar leiðir

mbl.is/Þórður

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum haft afskipti af þremur einstaklingum á mismunandi stöðum sem allir voru með fíkniefni í fórum sínum.  Í öllum tilvikunum lagði svo mikla kannabislykt frá vistarverum þeim sem mennirnir dvöldu í að hún barst langar leiðir.

Allir voru þeir handteknir og framvísuðu mismiklu magni af kannabisefnum, að því er lögreglan greinir frá í tilkynningu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann hringja  til koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert