Allar helstu leiðir á landinu eru greiðfærar en það er krapi á Steingrímsfjarðarheiði og Hrafnseyrarheiði, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.
Veðurspá næsta sólarhringinn:
Snýst smám saman í norðlæga átt, 8-15 V-til síðdegis, en annars hægari. Rigning eða slydda fyrir norðan, en annars víða skúrir. Léttir smám saman til S- og SV-lands seinnipartinn og í kvöld og yfirleitt léttskýjað þar á morgun. Hiti 1 til 9 stig, svalast NV-til.
„Í dag, miðvikudaginn 27. maí verður unnið við fræsingu á Vífilstaðavegi, milli Hafnarfjarðarvegar og hringtorgs við Sjálandshvarf. Vífilstaðavegur verður lokaður meðan á framkvæmdum stendur og verða hjáleiðir merktar. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin standi milli 9:00 og 13:00.
Einnig verður unnið við fræsingu á Hafnarfjarðavegi í dag, miðvikudaginn 27. maí, á kaflanum frá Fossvogslæk að gjá yfir Hafnarfjarðaveg. Á Hafnarfjarðarvegi verður ein akrein lokuð í einu meðan á framkvæmdum stendur. Frárein af Hafnarfjarðarvegi að Kársnesbraut verður lokuð og einnig aðrein að Hamraborg. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin standi milli 9:00 og 16:00. Hjáleiðir verða merktar,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.