Snjóar í kvöld og nótt

Spáð er snjókomu víða á norðanverðum Vestfjörðum og á Norðurlandi …
Spáð er snjókomu víða á norðanverðum Vestfjörðum og á Norðurlandi í kvöld og nótt. mbl.is/Gúna

Veðurstofan vekur athygli á því að víða á norðanverðum Vestfjörðum og á Norðurlandi, einkum vestatil, kemur til með að snjóa í kvöld og nótt.

Einkum mun snjóa á fjallvegum, þar sem einnig getur fokið í skafla. Á láglendi verður einnig krapi eða snjóföl þegar kólnar enn frekar undir nóttina.

Sjá veðurvef mbl.is

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni eru allar helstu leiðir á landinu greiðfærar en það er krapi á Dynjandisheiði og hálkublettir og skafrenningur á Hrafnseyrarheiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert